fimmtudagur, október 14, 2004
Gönguferð á Bjólf
Þann 5. sept síðastliðinn fór fjölskyldan ásamt fleirum í gönguferð á Bjólfinn. Það var frábær ferð og stóð Daníel sig alveg frábærlega. Hann fékk reyndar góða hjálp frá Jónasi og Gunnari sem báru hann á háhest hluta leiðarinnar. Myndir frá ferðinni er að finna á heimasíðu gönguklúbbsins http://www.sfk.is/gonguklubbur/bjolfur2004.htm en einnig eru nokkrar myndir á heimasíðunni okkar http://frontpage.simnet.is/kep/myndir.htm
Læt þessar myndir samt fljóta með hér en þær er hægt að skoða stærri á síðunni minni:

Nú verður einhver hissa!!
Jæja, ýmislegt hefur gerst síðan í júní!
Fjölskyldan fór í tveggja vikna túr um norðurland og vestfirði með tjaldvagninn í eftirdragi. Við gistum í Ásbyrgi, keyrðum um allt Langanesið, alveg út á Font, mæli samt með því að fólk gangi síðustu fimm kílómetrana. Gistum í Svarfaðardal, fórum í eftirminnilega ferð út í Hrísey. Gistum á Hólmavík, keyrðum um Strandirnar og Bjössi móðgaði konuna í kaupfélaginu í Norðurfirði. Gistum á Ísafirði, skoðuðum Ósvör, fórum upp á Bolafjall, geggjað útsýni, keyrðum til Flateyrar og Suðureyrar. Skoðuðum safnið á Hrafnseyri, gistum á Patreksfirði, fórum út á Látrabjarg, skoðuðum safnið á Hnjóti Örlygshöfn og gerðum alveg helling meir.
Í stuttu máli sagt: Mjög gott frí!

þriðjudagur, júní 22, 2004
Helgin að baki!
Við áttum fína helgi í Skagafirðinum. Fórum frá Seyðó um þrjú leytið, stoppuðum í kaffi hjá Guðrúnu og Erlingi á Mývatni og gistum svo á Akureyri. Nánar tiltekið á tjaldsvæði sem heitir Hamar og er fyrir ofan Kjarnaskóg. Versluðum svo á Akureyri á föstudaginn (ýmislegt útilegudót) og héldum svo áfram. Vorum komin á Steinastaði um hálf þrjú, skildum vagninn eftir þar og brenndum svo til baka í Varmahlíð og fengum okkur að borða.
Heimsóttum svo pabba aðeins á Húnavelli og vorum komin seinnipartinn aftur á Steinastaði. Þá fundum við okkur stað fyrir tjaldvagninn og tjölduðum græjunni.
Þar sem við vorum svona snemma í því þá gátum við valið um svæði og við plöntuðum okkur því þannig að við vorum mjög nálægt leiksvæðinu og höfðum útsýni yfir það svo við þyrftum ekki alveg að hanga í Daníel.
Hann fílaði þetta alveg í botn og var úti að leika sér alla helgina frá morgni til kvölds. Hann hitti þarna gamla vini og eignaðist nýja.
Fórum svo heim upp úr eitt á sunnudeginum, stoppuðum auðvitað í kaffi á Mývatni.
Þetta var mjög góð helgi og gaman að hitta þarna fólk sem er á svipuðum stað í lífinu.
Vona að sumarhátíð Þroskahjálpar verði að föstum liði hjá okkur í framtíðinni.

fimmtudagur, júní 17, 2004
Steinsstaðir
Jæja, þá er fyrsta útilega sumarsins í sigtinu.
Er búin að vera á fullu að pakka í morgun og stefnan er að fara af stað fljótlega.
Ferðinni er heitið í Skagafjörð, nánar tiltekið Steinsstaði en þar er árleg sumarhátíð Þroskahjálpar haldin.
Við ætlum að gista einhvers staðar fyrir norðan í nótt og dóla svo áfram á morgun.
Það er náttúrlega nýbúið að gera tjaldvagninn upp þannig að það verður að fara að prófa gripinn.
Bjössi var að vinna í ferjunni í morgun, kom svo heim um hálf eitt leytið og var strax kallaður út í björgunarleiðangur til þess að hjálpa nokkrum rolluskjátum upp úr fjörunni einhvers staðar út með firði. Hann var innlimaður í björgunarsveitina á sjómannadaginn án þess að hafa nokkurn tíma óskað eftir því!!!
Held samt að honum finnist þetta ekki leiðinlegt!
Jæja, bið að heilsa í bili

miðvikudagur, júní 09, 2004
Skítur og skammir!
Það er víst best að blogga eitthvað því það hellast yfir mig skítur og skammir í öðrum bloggum!! ;(
Lífið gengur sinn vanagang hér á Seyðis og allt í góðu með það.
Daníel plummar sig svaka vel á leikskólanum og allt lítur vel út í sambandi við skólann í haust.
Bjössi er farinn að vinna tímabundið í áhaldahúsinu og verður þar fram á haust.
Það hefur verið mikið um að vera hér á Seyðis og mikið fram undan. Það verður haldið upp á heimastjórnarafmælið á föstudaginn, ný sýning opnar í Tækniminjasafninu, Listahátíðin Á Seyði opnar um helgina og verður í gangi í allt sumar og svo verður Ceilidh hátíð alla helgina, Bláa kirkjan fer að byrja og svo verður auðvitað L.ung.A á sínum stað í sumar svo eitthvað sé nefnt!
Svo er sýningin Austurland 2004 að opna á morgun og ég verð eitthvað að vinna í henni.
Bless í bili

föstudagur, maí 14, 2004
Eurovision blakpartý
Á morgun verður blakgengið með Eurovision partý þar sem horft verður á allt heila klabbið á breiðtjaldi.
Þar sem ég er ekki mikill aðdáandi er ég að hugsa um að notfæra mér fyrrnefndan Eurovisionleik til þess að hrista aðeins upp í þessu.
Góða helgi öll sömul!

Hugmynd fyrir Eurovision partýin
Hér er komin hugmynd fyrir þá sem neyðast til þess að fara í Eurovision partý en fíla ekki Eurovision.
Uppskrift að þessum leik og öðrum drykkjuleikjum er að finna í Drykkjuleikjahandbókinni á síðunni http://sunnabeib.blogdrive.com/
Eurovision drykkjuleikurinn
(Þennan má bara leika einu sinni á ári í eurovision-partýum)
Drekka á 2 sopa ef:
• kynnarnir reyna að vera fyndnir
• kvenkyns kynnirinn skiptir um kjól
• kynnarnir eyða tíma í samtal sem enginn getur fylgst með
• einhver keppendanna er líkur einhverjum sem þú þekkir
• einhver keppendanna líkist einhverjum frægum
• minnst er á að Noregur sé ekki enn búinn fá stig
• Kýpur gefur Grikklandi 12 stig
• Noregur gefur Svíþjóð stig
Drekka á 4 sopa ef:
• söngvari lyftir handleggjunum upp fyrir haus á meðan hann syngur
• söngvari er mjög feitur
• flytjendur eru í hallærislegum fötum eða með hallærislega hárgreiðslu
• söngvari frá Austur-Evrópu er með aflitað hár
• sést í geirvörtur í gegnum fötin
• flytjandinn frá Möltu er ekki loðinn á bringunni
• önnur lönd en enskumælandi flytja á ensku
• flytjandi daðrar í myndavélina
• flytjandi er ekki frá landinu sem hann syngur fyrir
• Frakkland gefur Bretlandi ekki stig
• lagið sem fær 8 stig eða hærra er lélegt
• Bretland lendir í öðru sæti
• flytjendur eru að tala í síma á meðan stigagjöfin er
Klára á glasið ef:
• Þýskaland gefur Austurríki 1 stig
• Ísland vinnur
• Noregur gefur Svíþjóð ekki stig
• Írland vinnur
• ekki er minnst á frið, kærleika eða ást í þýska laginu

Hvað er með manninn?
Er að velta því fyrir mér hvort maðurinn sé endanlega búinn á því - hvað á það að þýða að vera ekki viðstaddur "brúðkaup aldarinnar" og gefa svona skít í Dani?
Skil þetta ekki, hélt einmitt að það væru svona hlutir sem hann væri ráðinn í að gera, er greinilega að misskilja þetta eitthvað!

Borgin - skjalastjórn
Fór suður til Reykjavíkur á þriðjudagskvöld til þess að fara á ráðstefnu um skjalastjórn. Ráðstefnan var að mestu vel heppnuð þótt atriði eins og kaffi (og með því) og hádegis"matur" hefði mátt útfæra betur.
Þarna voru flutt mörg fróðleg erindi og svo voru hin ýmsu fyrirtæki með kynningu og sýningu á vörum sínum.
Daginn eftir ráðstefnuna fékk ég svo að fara í heimsókn á bæjarskrifstofur Hafnarfjarðar og Garðabæjar og skoða skjalamálin þar. Það var einkar fróðlegt.
Kom svo heim á fimmtudagskvöld og að gamni má geta þess að aðfaranótt föstudagsins dreymdi mig skjalastjórn og tengd málefni alla nóttina!!!!

Aftur komin helgi!!!
Það er víst aftur komin helgi sem þýðir að ég hef ekki bloggað í heila viku, skítt með það.
Matarklúbburinn heppnaðist svona ljómandi vel. Matseðillinn var á þessa leið:
forréttur - fylltar lárperur
aðalréttur - fylltar svínalundir
eftirréttur - fylltar pönnukökur
skemmtiatriði - fylltir gestir
Einhvern tímann á milli 2 og 3 um nóttina var rölt á hótelið. Þar vorum við þangað til lokaði en þá var rölt á Láruna og dansað þangað til löggan lokaði. Þá var endað í partý og við Bjössi röltum svo heim í brakandi blíðu um 6 leytið.
Tókum því rólega á sunnudaginn....

föstudagur, maí 07, 2004
Helgin framundan
er spennandi. Það er matarklúbbur annað kvöld hjá mér. Klúbburinn er nýstofnaður og er að hittast í annað sinn. Meðlimir hans eru níu talsins, við Bjössi, Sigurveig og Villi, Guðrún og Klas, Öddi og Elín og Elfa Hlín og hún sjálf.
Nýr blogg tengill
Hið árlega þýskupróf
frændanna er í dag. Ekki stendur þó til að endurtaka aðfarirnar á heiðinni síðan í fyrra!!
Brake a leg, boys! (Er stúdent í þýsku en treysti mér þó ekki til þess að senda ykkur kveðju á því máli)

Daníel fluttur að heiman!
Daníel fór til ömmu sinnar í gær og er ekki væntanlegur heim fyrr en á sunnudag/mánudag!
Fór í Héraðið í gær, snjóaði á heiðinni, snjóaði á Egilsstöðum!
Verslaði í Klassík, alger snilld!
Von er á vorinu um helgina!

mánudagur, maí 03, 2004
Úlfsstaðir um helgina
Skelltum okkur í sumarbústað um helgina. Fengum FOSA bústað á Úlfsstöðum, fínn bústaður. Skruppum á Kárahnjúka á laugardeginum, lentum í snjóstormi, kaffi á Haugum, sól og blíða seinnipartinn. Vorum úti að leika.
Rólegheit á sunnudag, jaðraði við snjókomu. Blóm á Egilsstöðum í tilefni dagsins :(
Snjóaði á Fjarðarheiði og á Seyðisfirði.
Brjálað rok um kvöldið og nóttina. Ellti grillábreiðsluna um lóðina og grillið færðist úr stað. Hélt á tímabili að ég byggi í húsi úr pappakassa, þvílíkt næddi inn um lokaða gluggana. Gardínan í svefnherberginu fauk meira að segja um miðja nótt!